Tillaga tölvunefndar Golfsambands Íslands þess efnis að GSÍ taki í notkun hugbúnaðarkerfið Golfbox var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á aukaþingi GSÍ í morgun.
Golfbox hefur frá árinu 2003 rekið og þróað hugbúnaðarkerfi fyrir golfklúbba, golfsambönd og mótshaldara. Kerfið hefur verið í notkun í tugum landa með góðum árangri og er leiðandi lausn á markaði Kerfið býr yfir fullkomnu mótakerfi, nýju forgjafarkerfi (WHS), rástímakerfi og ýmsum öðrum möguleikum sem styðja við starfsemi golfklúbba.
Stjórn GSÍ fjallaði um málið á síðasta stjórnarfundi sínum þann 28.mars 2019.
Á þeim fundi var samningur við Golfbox til fimm ára undirritaður með fyrirvara um samþykki auka-Golfþings, sem haldið verður 11.maí. Golfhreyfingin mun eiga lokaorðið og ákveða hvaða leið verður fyrir valinu.
Gert er ráð fyrir að Golfbox verði komið í gagnið og aðgengilegt fyrir kylfinga á golf.is í byrjun árs 2020.
Sjá nánar í þessari frétt: