Auglýsing

Það verður mikið um að vera þann 10. júní þegar Golfdagur PGA fer fram víðsvegar um landið.

Markmið Golfdags PGA er að fjölga kylfingum á öllum aldri og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar.

Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar þar sem PGA golfkennarar og PGA golfkennaranemar verða til staðar að leiðbeina.

Boðið verður upp á skemmtilegar þrautir og leiki ásamt kennslu í hinum ýmsu þáttum leiksins. Kylfur verða á staðnum fyrir þá sem vantar, það er engin nauðsyn að vera allan tímann og vel mögulegt að koma í styttri tíma sem og lengri.

Golfdagur PGA er samvinnuverkefni PGA á Íslandi & GSÍ og fer fram þann 10. júní kl. 11 í Reykjavík, Blönduósi, Norðfirði og Höfn í Hornafirði.

Allar upplýsingar um viðburðinn má finna á Golfdagur PGA og Stelpugolf og athugið að viðburðurinn er öllum opinn og er ókeypis.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ