Mynd/PGA
PGA á Íslandi.
Auglýsing

Golfkennaraskólinn hefst í haust og lýkur að vori 2021. Kennt verður eftir nýju kerfi (European Education Level System) sem hefur verið þróað í nokkur ár af PGA í Evrópu.

  • Námið byggist á þremur þáttum:
    • Kennsla og þjálfun (Teaching and Coaching)
    • Golfleikurinn (The Game)
    • Iðnaðurinn (The Industry)

Hér má finna námsskrá EELS

Inntökuskilyrði:

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og geta lesið og skrifað á ensku.

Hámarksforgjöf nemenda er 5,4 fyrir karla og 8,4 fyrir konur.

Nemendur þurfa að standast spilahæfni PGA golfkennaraskólans (Playing Ability Test).
Krafa er gerð að leika tvo hringi í röð á hámark samtals 15 (karlar) eða 20 (konur) yfir SSS vallar, leikið af hvítum (karlar) eða bláum (konur) teigum á mótum samþykktum af skólanefnd PGA (t.d. Eimskipsmótaröðinni).

Námið er þriggja ára lotunám, það hefst í október 2018 og lýkur í maí 2021. Kennt verður í fjórum lotum á önn og fer kennslan ávallt fram föstudegi til sunnudags.

Verð: 1.470.000 (490.000 kr. á ári)

Umsóknarfrestur er til 30. september. Umsókn má finna hér:

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Ólafi Birni Loftssyni, framkvæmdastjóra PGA á Íslandi, í gegnum netfangið olafur@pga.is

PGA er alþjóðlegt vörumerki sem stendur fyrir Professional Golfers Association. Námið sem

PGA golfkennaraskólinn á Íslandi býður upp á er viðurkennt af PGA í Evrópu og gefur alþjóðleg réttindi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ