/

Deildu:

Golfklúbbur Akureyrar.
Auglýsing

Í dag er stór dagur hjá Golfklúbbi Akureyrar þar sem klúbburinn fagnar 80 ára afmæli sínu.

Það var  19 ágúst 1935 sem 27 menn hittust í Samkomuhúsinu Skjaldborg á Akureyri, í þeim tilgangi að stofna golfklúbb á Akureyri og var Gunnar Schram kosinn fyrsti formaður Golfklúbbs Akureyrar og var fyrsti golfvöllurinn 6 holur á Gleráreyrum.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag státar GA af einum glæsilegasta golfvelli landsins á Jaðri.  Miklar breytingar hafa átt sér stað á vellinum á undanförnum árum og sér nú fyrir endan á þeim.  Nú í sumar klárast framkvæmdir við 6 holu æfingavöll og á haustmánuðum verður hafist handa við að byggja upp æfingaskýli sem fengið hefur nafnið Klappir.

Íslandsmótið í golfi fer fram á Jaðarsvelli á næsta ári og verður spennandi að sjá bestu kylfinga landsins etja kappi á jaðarsvelli eftir þær viðamiklu breytingar sem völlurinn hefur gengið í gegnum. Golfsamband Íslands óskar félagsmönnum í GA til hamingju með daginn.

Myndin með fréttinni er tekin á þekktasta golfmóti Golfklúbbs Akureyrar, Artic Open.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ