/

Deildu:

Frá Hamarsvelli í Borgarnesi.
Auglýsing

GB er staðsettur að Hamarsvelli í Borgarnesi. Þar er starfræktur glæsilegur 18 holu golfvöllur, æfingasvæði, æfingavöllur og púttsvæði. Samstarfssamningur er á milli GB og Hótel Hamars þar sem klúbbmeðlimir hafa aðstöðu. Fjöldi gesta sækir völlinn heim á hverju ári og haldin eru fjölmörg golfmót á vellinum, bæði innanfélagsmót og opin mót. 

Klúbburinn er metnaðarfullur, framsýnn og felast spennandi framtíðartækifæri í þróun starfsins og vallarins. 

Nánari upplýsingar um GB má finna á heimasíðu klúbbsins gbgolf.is.

Starfssvið:
Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn GB og er formaður félagsins hans næsti yfirmaður.

Meðal helstu verkefna framkvæmdastjóra eru:


Yfirumsjón með og ábyrgð á daglegum rekstri, þar með talið starfsmannahald, fjármál og samskipti við þá aðila sem tengjast rekstrinum á einhvern hátt svo sem samstarfsaðila, styrktaraðila, birgja og verktaka.

 

  • Ábyrgð á þjónustu við klúbbmeðlimi og almenna kylfinga.

  • Gerð framkvæmdaráætlunar í samstarfi við stjórn, vallarnefnd og vallarstjóra og eftirlit með öllum framkvæmdum ásamt uppgjöri á þeim.

  • Samræming verkefna og eftirfylgni þeirra.

  • Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

 

  • Háskólamenntun og/eða menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af stjórnun og fjármálum er kostur

  • Þekking á vallarstjórnun og fagleg þekking á umhirðu golfvalla er kostur

  • Þekking og reynsla af golfíþróttinni er kostur

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Færni í mannlegum samskiptum, samskiptahæfni og samstarfsvilji

  • Jákvæðni og þjónustulund

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, í töluðu og rituðu máli

  • Haldgóð tölvukunnátta


Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf þar sem ástæða

umsóknar er tilgreind.


Um er að ræða 100% stöðu frá og með 1. október 2024. Umsóknarfrestur er til 20. september

 

Frekari upplýsingar veitir formaður klúbbsins, Snæbjörn Óttarsson, baunar@gmail.com.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ