GB er staðsettur að Hamarsvelli í Borgarnesi. Þar er starfræktur glæsilegur 18 holu golfvöllur, æfingasvæði, æfingavöllur og púttsvæði. Samstarfssamningur er á milli GB og Hótel Hamars þar sem klúbbmeðlimir hafa aðstöðu. Fjöldi gesta sækir völlinn heim á hverju ári og haldin eru fjölmörg golfmót á vellinum, bæði innanfélagsmót og opin mót.
Klúbburinn er metnaðarfullur, framsýnn og felast spennandi framtíðartækifæri í þróun starfsins og vallarins.
Nánari upplýsingar um GB má finna á heimasíðu klúbbsins gbgolf.is.
Starfssvið:
Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn GB og er formaður félagsins hans næsti yfirmaður.
Meðal helstu verkefna framkvæmdastjóra eru:
Yfirumsjón með og ábyrgð á daglegum rekstri, þar með talið starfsmannahald, fjármál og samskipti við þá aðila sem tengjast rekstrinum á einhvern hátt svo sem samstarfsaðila, styrktaraðila, birgja og verktaka.
- Ábyrgð á þjónustu við klúbbmeðlimi og almenna kylfinga.
- Gerð framkvæmdaráætlunar í samstarfi við stjórn, vallarnefnd og vallarstjóra og eftirlit með öllum framkvæmdum ásamt uppgjöri á þeim.
- Samræming verkefna og eftirfylgni þeirra.
- Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun og/eða menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun og fjármálum er kostur
- Þekking á vallarstjórnun og fagleg þekking á umhirðu golfvalla er kostur
- Þekking og reynsla af golfíþróttinni er kostur
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum, samskiptahæfni og samstarfsvilji
- Jákvæðni og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í töluðu og rituðu máli
- Haldgóð tölvukunnátta
Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf þar sem ástæða
umsóknar er tilgreind.
Um er að ræða 100% stöðu frá og með 1. október 2024. Umsóknarfrestur er til 20. september
Frekari upplýsingar veitir formaður klúbbsins, Snæbjörn Óttarsson, baunar@gmail.com.