/

Deildu:

Frá Öndverðarnesvelli. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Golfklúbbur Öndverðarness (GÖ) leitar að nýjum framkvæmdarstjóra sem hefur yfirumsjón með öllum daglegum rekstri klúbbsins. 

GÖ er staðsettur að Öndverðarnesi í Grímsnesi. Þar er starfræktur 18 holu golfvöllur, æfingasvæði, veitingasala með um 150 manna veislusal og leiga á golfbílum og settum. 

Klúbburinn er í dag með tæplega 700 meðlimi sem er mjög  samheldinn hópur. Klúbburinn er metnaðarfullur, framsýnn og mjög vel tækjum búinn og má þar nefna að komnir eru slátturóbotar á allar brautir vallarins sem knúðir eru með sólarorku,  vökvunarkerfi er komið á flestar flatir og teiga vallarinn svo eitthvað sé nefnt.

Nánari upplýsingar um GÖ má finna á heimasíðu félagsins www.gogolf.is

Starfssvið: 

Framkvæmdarstjóri heyrir undir stjórn GÖ og er formaður félagsins hans næsti yfirmaður. Meðal helstu verkefna framkvæmdastjóra eru:

  • Yfirumsjón með og ábyrgð á daglegum rekstri, þar með talið starfsmanannahald, fjármál og samskipti við þá aðila sem tengjast rekstrinum á einhvern hátt svo sem ábyrgðamenn veitingasölu, styrktaraðila, birgja og verktaka.  
  • Ábyrgð á þjónustu við klúbbmeðlimi sem og almenna kylfinga 
  • Gerð framkvæmdaráætlunar í samstarfi við stjórn, vallarnefnd og vallarstjóra og eftirlit með öllum framkvæmdum ásamt uppgjöri á þeim.
  • Ábyrgð á innkaupum og rekstri tækjabúnaðar klúbbsins
  • Samræming verkefna og eftirfylgni þeirra 
  • Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins 

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Háskólamenntun og / eða menntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking á vallarstjórnun og fagleg þekking á umhirðu golfvalla er mjög æskileg
  • Þekking og reynsla af golfíþróttinni
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi 
  • Færni í mannlegum samskiptum, samskiptahæfni og samstarfsvilji 
  • Jákvæðni og þjónustulund 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, í töluðu og rituðu máli 
  • Haldgóð tölvukunnátta 
  • Reynsla af stjórnun 

Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf þar sem ástæða umsóknar er tilgreind.

Um er að ræða 100% stöðu frá og með haustinu 2024. Umsóknarfrestur er til 31. Júlí 2024.

Umsóknum skal skilað í gegnum alfred.is

https://alfred.is/starf/597de353-d9fe-4902-be4d-2878a5d47536

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ