/

Deildu:

Auglýsing

Golfsýningin 2019 verður haldin í samstarfi við GSÍ og PGA á Íslandi og er markmið sýningarinnar að vekja athygli á íþróttinni sem og búa til vettvang fyrir kylfinga til að kynna sér betur þær vörur og þjónustur sem eru í boði fyrir kylfinga.

Sýningin fer fram í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi helgina 30.-31. mars og er aðgangur ókeypis. 

„Golfíþróttin hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og hafa kylfingar aldrei verið fleiri. Samhliða fjölgun kylfinga hefur aðstaða til golfiðkunar orðið betri og völlum fjölgað. Það er markmið GSÍ og PGA að fjölga enn frekar iðkendum í golfi, það er því fagnaðarefni að framtakssamir aðilar hafa nú ákveðið að efna til golfsýningar svo kylfingar og almenningur geti kynnt sér enn frekar kosti þess að leika golf,“ segir Stefán Garðarsson Sölu- og Markaðsstjóri GSÍ.

PGA á Íslandi og GSÍ munu bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem hægt verður að kynnast golfíþróttinni. Boðið verður upp á SNAG golf fyrir yngstu kynnslóðina, golfkennarar verða á staðnum auk þess sem kylfingar geta reynt sig í golfhermum af bestu gerð. Golfdómarar munu kynna hinar fjölmörgu breytingar sem nú hafa orðið á golfreglunum og einnig verður boðið upp á ýmsar golfþrautir.

Á sýningunni má finna vörur frá þekktustu kylfu framleiðendum heims en einnig vörur sem hafa ekki sést á Íslandi áður.

„Allt frá PING og Taylor Made, niður í lítið sprey frá Grip Boost sem bætir gripið, það verða ferðskrifstofur, skór, fatnaður, heilsurækt, kírópraktorar, golfhermar, fasteignasölur og allt annað sem tengist golfi með beinum eða óbeinum hætti. Það verður klárlega eitthvað fyrir alla á svæðinu og við lögðum mikinn metnað í að hafa sem fjölbreytastan hóp sýnenda á svæðinu,“ segir Björn Björnsson annar skipuleggjandi sýningarinnar.

„Hugmyndin kviknaði í lok síðasta sumars þar sem margir í kringum okkur spyrja sömu spurningana varðandi golf, „hversu dýrt er þetta“, „tekur þetta ekki rosalegan tíma“ og „hvernig byrjar maður“.

Rétt fyrir áramót þá ræddum við þetta svo aftur og vorum orðnir nokkuð spenntir fyrir að láta reyna á þetta. Þá var ekkert annað að gera en að heyra í GSÍ og PGA sem tóku vel á móti okkur og á endanum þá small þetta saman“.

Sýningin verður sem áður segir haldin helgina 30.-31. mars í íþróttasalnum Smáranum í Kópavogi. Opið verður báða dagana frá 10-16 og mun PGA á Íslandi ásamt GSÍ standa fyrir viðburðum og leikjum alla helgina. Hægt er að kynna sér sýninguna betur og hvaða sýnendur verða á svæðinu inni á www.facebook.com/golfsyningin .

„Það verður klárlega eitthvað fyrir alla á svæðinu, unga sem aldna og reynda sem óreynda kylfinga. Golf er fjölskylduíþrótt þar sem allir geta tekið þátt og markmiðið okkar er að gera þessa helgi að árlegum viðburði sem gefur kylfingum smá auka spennu fyrir sumrinu,“ segir Björn að lokum og vonast að sjálfsögðu til að sjá sem flesta á svæðinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ