Frétt af heimasíðu GR.
Við hjá Golfklúbbi Reykjavíkur auglýsum laus störf eftirlitsmanna fyrir komandi tímabil. Golfklúbbur Reykjavíkur rekur tvo golfvelli, annars vegar í Grafarholti og hins vegar á Korpúlfsstöðum. Í Grafarholti er að finna 18 holu golfvöll ásamt 6 holu æfingavelli, á Korpúlfsstöðum er 27 holu golfvöllur ásamt 9 holu æfingavelli – Thorsvöllur. Árlega eru leiknir rúmlega 60 þúsund hringir á völlum klúbbsins og krefst slík umferð góðrar umhirðu og eftirlits.
Helstu verkefni eftirlitsmanns eru:
- Þjónusta við félagsmenn
- Umsjón og umhirða á völlum
- Eftirlit með leik og leikhraða
- Leitað er eftir jákvæðum einstaklingum sem hafa þekkingu á golfíþróttinni, eru stundvísir og samviskusamir og með góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Ráðningartímabil eru fimm mánuðir, frá maí fram í september.
Umsóknarfrestur er til 10. mars 2016 og skulu umsóknir berast á póstfangið omar@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur