Golfsumarið 2019 hefur farið gríðarlega vel af stað og þá sérstaklega í samanburði við árið 2018.
Golfvellirnir komu einstaklega vel undan vetri og golfvertíðin hófst mun fyrr en á undanförnum árum.
Hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar liggja fyrir áhugaverðar staðreyndir og samanburður á milli 2018 og 2019.
Á Leirdalsvelli er aukningin um 56% í spiluðum hringjum og aukningin er 81% á milli ára á Mýrinni.
Þátttaka í mótum hefur einnig aukist umtalsvert eða tæplega 20% á milli ára.
Hjá félagsmönnum GKG er aukningin 74% í spiluðum hringjum á Leirdalsvelli og 91% í Mýrinni.
Svipaða sögu er að segja frá öðrum klúbbum landsins.