/

Deildu:

Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR bætti stöðu sína verulega á lokamóti NCAA háskóladeildarinnar í Bandaríkjunum í gær. Guðmundur Ágúst, sem keppir fyrir East Tennessee State háskólann, lék á pari vallar eða 72 höggum. Hann er samtals á +6 eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 78 höggum en hann fór holu í höggi á þeim hring.

Staðan á mótinu:


Guðmundur er annar íslenski kylfingurinn sem nær að komast í úrslitamót NCAA háskólakeppninnar í Bandaríkjunum. Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, og sexfaldur Íslandsmeistari í golfi, lék á þessu móti árið 1988. Aðeins bestu háskólaliðin í Bandaríkjunum eru með í liðakeppninni á þessu móti. Guðmundur keppir í einstaklingskeppninni en skólalið hans náði ekki að komast í lokamótið.

Eftir hringinn í gær fór Guðmundur Ágúst upp um 30 sæti í keppni einstaklinga en hann er í 60. sæti af alls 156 keppendum.

Guðmundur hóf keppni á 10. teig í gær og byrjaði hann með tveimur fuglum í röð. Hann tapaði síðan höggum á 13., 15., 18., 2., og 5. Hann lagaði síðan stöðu sína með þremur fuglum í röð á síðustu þremur holunum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ