Guðmundur Ágúst Kristjánsson endaði í 9. sæti á PGA Catalunya Resort Championship.
Mótið er hluti af atvinnumótaröðinni Nordic Tour en Guðmundur Ágúst fagnaði sigri á síðasta móti á þessari mótaröð.
GR-ingurinn endaði á -3 samtals (68-73-70).
Þrír aðrir íslenskir kylfingar tóku þátt á þessu móti en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.
Axel Bóasson, GK (78-67) +3
Haraldur Franklín Magnús, GR (74-74) +6
Andri Þór Björnsson, GR (73-76) +7