Auglýsing

Fjórir íslenskir kylfingar eru á meðal þátttakenda á Rosa Challenge Tour mótinu sem fram fer á Rosa golfvellinum í Konopiska, Póllandi. Fyrsti keppnisdagurinn er í dag, 29. ágúst og lokadagurinn er sunnudagurinn 1. september

Mótið er hluti af Challenge Tour atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Íslensku kylfingarnir eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Dagbjartur Sigurbrandsson.

Guðmundur Ágúst, Haraldur Franklín og Axel eru allir með keppnisrétt á Challenge Tour mótaröðinni á þessu tímabili.

Dagbjartur vann sér inn keppnisrétt á þessu móti með frábærum árangri á Nordic Tour móti sem fram fór í Póllandi fyrr á þessu ári.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín er að leika á sínu fimmtánda móti á þessu tímabili. Guðmundur Ágúst hefur leikið á tólf mótum og Axel á ellefu mótum. Dagbjartur er að leika á sínu fyrsta móti.

Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Póllandi það tuttugasta á þessu tímabili.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ