Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson eru á meðal keppenda á Le Vaudreuil Golf Challenge mótinu sem fram fer á samnefndum velli í Frakklandi. Mótið hefst fimmtudaginn 27. júní og eru leiknir fjórir 18 holu hringir á fjórum dögum. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag.
Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:
Haraldur Franklín er að leika á sínu ellefta móti á þessu tímabili. Sjá nánar hér.
Guðmundur Ágúst og Axel eru að leika á sínu sjöunda móti á tímabilinu á þessari mótaröð. Sjá nánar hér með árangur Guðmundar, og hér með árangur Axels.
Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.
Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Frakklandi það fjórtánda á þessu tímabili.