Site icon Golfsamband Íslands

Guðmundur Ágúst, Haraldur Franklín og Axel keppa Challenge Tour á Ítalíu

Þrír íslenskir kylfingar eru á meðal þátttakenda á Italian Challenge Open sem fram fer dagana 19.-22. september, Mótið fer fram á Argentario vellinum.

Mótið er hluti af Challenge Tour atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Íslensku kylfingarnir eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín er að leika á sínu 16 móti á þessu tímabili. Guðmundur Ágúst hefur leikið á 14 mótum og Axel á 13 mótum.

Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Guðmundur Ágúst er í 81. sæti á stigalistanum en hans besti árangur er 2. sætið á tímabilinu.
Nánar um árangur Guðmundar Ágústs hér:

Haraldur Franklín er í 101. sæti á stigalistanum og besti árangur hans á tímabilinu er 9. sæti.
Nánar um árangur Haraldar Franklíns hér:

Axel er í sæti nr. 201 á stigalistanum og besti árangur hans er 37. sæti.
Nánar um árangur Axels hér:

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið á Ítalíu það 23. á þessu tímabili.

Exit mobile version