Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, hefur leik í dag á D+D REAL Czech Challenge mótinu sem fram fer á Kunětická Hora golfvellinum í Tékklandi. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki á eftir sjálfri DP Evrópumótaröðinni.
Mótið hefst í dag fimmtudaginn 2. júní og verða leiknir fjórir hringir á fjórum keppnisdögum.
Haraldur Franklín Magnús er ekki á meðal keppenda á þessu móti en hann ætlar sér að taka þátt á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið – en úrtökumótið fer fram 6. júní á velli rétt við New York.
Nánari upplýsingar um mótið, rástímar, staða og úrslit:
Guðmundur Ágúst hefur leikið á sjö mótum á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni og komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur þeirra. Besti árangur hans er 11. sæti og hann hefur einnig endað í 14. sæti. Guðmundur Ágúst er í sæti nr. 125 þessa stundina á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.
Guðmundur þarf að bæta stöðu sína verulega á stigalistanum til þess að komast inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar þar sem að 45 efstu keppendurnir keppa um 20 efstu sætin sem tryggja þeim keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni.
Aðeins tveir kylfingar frá Íslandi hafa komist inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar – Birgir Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti árið 2020.
Birgir Leifur endaði í 35. sæti árið 2017.
Áskorendamótaröðin var sett á laggirnar árið 1989. Frá þeim tíma hafa margir þekktir kylfingar nýtt sér mótaröðina sem stökkpall inn á Evrópumótaröðina – DP Tour. Þar má nefna Thomas Bjørn (1995), Justin Rose (1999), Ian Poulter (1999), Henrik Stenson (2000), Louis Oosthuizen (2003), Tommy Fleetwood (2011) og Brooks Koepka (2013).