Þrír íslenskir keppendur voru á meðal kylfinga sem léku á NCAA Kohler Regional mótinu. Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék best íslensku kylfingana og endaði hann í 5. sæti á -4 samtals en hann leikur fyrir East Tennessee háskólann. Gísli Sveinbergsson og Bjarki Pétursson léku fyrir Kent State háskólann og enduðu þeir í 63. og 68. sæti.