Golfsamband Íslands

Guðmundur Ágúst og Haraldur Franklín jafnir í efsta sæti eftir fyrsta hring á Challenge Tour í Danmörku

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson.

Axel Bóasson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús eru allir á meðal keppenda á Danish Golf Challenge sem fram fer í Óðinsvéum í Danmörku. Keppt er á
Odense Eventyr golfvellinum dagana 23.-26. maí 2024.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst léku gríðarlega vel á fyrsta keppnisdegi og eru þeir jafnir í efsta sæti á 6 höggum undir pari, 66 höggum. Norðmaðurinn Andreas Halvorsen er á sama skor og þeir Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst.

Axel Bóasson lék fyrsta hringinn á pari vallar og er hann jafn í 52. sæti.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín hefur tekið þátt á sex mótum á tímabilinu en hans besti árangur á árinu er 9. sæti á móti sem fram fór í Abú Dabí í lok apríl. Hann er í 57. sæti stigalistans á Challenge Tour – Nánar hér.

Guðmundur Ágúst og Axel eru að leika á sínu fjórða móti á tímabilinu á þessari mótaröð. Sjá nánar hér með árangur Guðmundar, og hér með árangur Axels.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Danmörku það tíunda á þessu tímabili.

Exit mobile version