Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, og Haraldur Franklín Magnús, GR eru báðir á meðal keppenda á SDC Open sem fram fer í Suður-Afríku dagana 24.-27. mars. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, ChallengeTour, sem er næst sterkasta mótaröð atvinnukylfinga í Evrópu í karlaflokki.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á SDC Open.
Mótið fer fram á Zebula Golf Estate & Spa, í Limpopo í Suður-Afríku.
Haraldur Franklín endaði í þriðja sæti á Jonsson Workwear mótinu á þessari mótaröð í lok febrúar en hann hefur dvalið á Íslandi á undanförnum viku við æfingar. Haraldur Franklín er í 11. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.
Guðmundur Ágúst hefur leikið á einu móti á þessu tímabili í Suður-Afríku – þar sem hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 48. sæti á stigalistanum og var hársbreidd frá því að komast inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar þar sem að 45 efstu keppendurnir kepptu um 20 efstu sætin sem tryggðu þeim keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni.
Hann lék á alls 19 mótum í fyrra og fékk alls 35,816 stig.
Aðeins tveir kylfingar frá Íslandi hafa komist inn á lokamót Áskorendamótaraðarinnar – Birgir Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti árið 2020.
Birgir Leifur endaði í 35. sæti árið 2017.
Áskorendamótaröðin var sett á laggirnar árið 1989. Frá þeim tíma hafa margir þekktir kylfingar nýtt sér mótaröðina sem stökkpall inn á Evrópumótaröðina – DP Tour. Þar má nefna Thomas Bjørn (1995), Justin Rose (1999), Ian Poulter (1999), Henrik Stenson (2000), Louis Oosthuizen (2003), Tommy Fleetwood (2011) og Brooks Koepka (2013).