Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús eru á meðal keppenda á Swiss Challenge mótinu sem fram fer dagana 26.-29. september á Golf Saint Apollinaire vellinum við Folgensbourg í Frakklandi.

Mótið er hluti af Challenge Tour atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Frakklandi það 24. á þessu tímabili.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín er að leika á sínu 17 móti á þessu tímabili. Guðmundur Ágúst hefur leikið á 16 mótum.

Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Guðmundur Ágúst er í 82. sæti á stigalistanum en hans besti árangur er 2. sætið á tímabilinu.
Nánar um árangur Guðmundar Ágústs hér:

Haraldur Franklín er í 102. sæti á stigalistanum og besti árangur hans á tímabilinu er 9. sæti.
Nánar um árangur Haraldar Franklíns hér:

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ