/

Deildu:

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili endaði í 53. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina. Guðrún Brá lék á +2 samtals á fimm hringjum en hún lék á 73 höggum á lokahringnum (74-70-70-75-73) og 362 höggum samtals.

Lokastaðan:

Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún Brá reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir LET.  Hún var 6 höggum frá því að komast í hóp þeirra sem tryggðu sér keppnisrétt á sterkustu mótaröð Evrópu á næsta tímabili.

Casey Danielson frá Bandaríkjunum sigraði á -14 samtals en hún stóð uppi sem sigurvegari eftir bráðabana þar sem þrír kylfingar voru jafnir á -14.

Guðrún Brá komst örugglega í gegnum fyrra stig úrtökumótsins sem fór einnig fram í Marókkó líkt og lokaúrtökumótið.

Þetta er sjötta árið í röð þar sem lokúrtökumótið fer fram í Marokkó og úrslitin ráðast þann 20. desember.

Alls voru 106 keppendur frá 18 þjóðum sem kepptu á tveimur völlum, Amelkis og Palm Golf Ourika Marrakech. Alls voru leiknir fimm 18 holu hringir og komust 60 efstu áfram á lokahringinn.

25 efstu komust inn á LET Evrópumótaröðina. Fimm efstu komast í styrkleikaflokk 5b og þær sem enda í sætum 6.-25. verða í styrkleikaflokki 8a.

Hér er hægt að fylgjast með gangi mála hjá Guðrúnu: 

Guðrún Brá er fjórði íslenski kylfingurinn sem kemst í lokaúrtökumótið hjá LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir braut ísinn fyrst allra á sínum tíma með því að tryggja sér keppnisrétt á LET.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir fylgdu síðan í kjölfarið og Guðrún Brá gæti því orðið fjórða íslenska konan sem tryggir sér keppnisrétt á mótaröð þeirra bestu í Evrópu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ