Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili Hafnarfirði, keppti á Joburg Ladies Open – sem fram fór í samnefndri borg í Suður-Afríku. Leiknir voru þrír keppnishringirdagana 24.-26. mars 2022.
Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit mótsins.
Guðrún Brá lék hringina þrjá á +8 samtals (77-74-76) og endaði hún í 55. sæti. Linn Grant frá Svíþjóð sigraði í fyrsta sinn á sínum ferli á LET Evrópumótaröðinni. Hún lék á 11 höggum undir pari samtals.
Þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi er með fullan keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, líkt og undanfarin ár.
Hún er í sæti nr. 98 á stigalista mótaraðarinnar þessa stundina.
Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni.
Á fjórða tug móta eru á keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar.
Þetta var þriðja mótið á tímabilinu hjá Guðrúnu Brá sem endaði í 55. sæti á fyrsta móti tímabilsins, Magical Kenya Ladies Open, sem fram fór í Kenía í febrúar.
Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn á öðru móti ársins – Aramco Saudi Ladies International mótinu sem fram fór dagana 17.-20. mars í Sádí-Arabíu.
Keppnisdagskrá LET 2022 er hér í heild sinni:
Guðrún Brá gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Hún er fjórða konan frá Íslandi sem tryggir sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa einnig verið með keppnisétt á LET.
Alls lék Guðrún Brá á 16 mótum á LET Evrópumótaröðinni á síðasta tímabili. Besti árangur hennar á árinu 2021 var 12. sæti. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni 2020 á Þorláksvelli.
Á heimslistanum hefur Guðrún Brá farið upp um tæplega 255 sæti á árinu 2021 en hún er í sæti nr. 620 á heimslistanum.
Guðrún Brá lék á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar, annað árið í röð. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á stigalistanum á LET Evrópumótaröðinni en árið 2020 endaði hún í sæti nr. 127 á stigalistanum.
Það eru mörg ferðalög framunda á þessu ári hjá Guðrúnu Brá líkt og undanfarin ár. Mótin á LET fara fram í fimm mismunandi heimsálfum, Afríku, Asíu, Eyjaálfu, Evrópu og Norður-Ameríku.
Afríka (3 mót)
Kenía (1 mót)
Suður-Afríka (2 mót)
Asía (5 mót)
Sádí-Arabía (2 mót)
Indland
Dubaí
Eitt mót fer fram Asíu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.
Eyjaálfa (2 mót)
Ástralía, (2 mót)
Evrópa (20 mót)
Spánn (4 mót)
Frakkland (3 mót)
Belgía,
Svíþjóð (2 mót)
England
Tékkland,
Holland,
Skotland (2 mót)
Norður-Írland
Finnland
Sviss
Írland
Eitt mót fer fram Evrópu þar sem á eftir að staðfesta keppnisstað.
Norður-Ameríka (1 mót)
Bandaríkin.