Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2019, fékk ekki langan tíma til að fagna tilinum sem hún landaði í annað sinn á ferlinum s.l. sunnudag á Grafarholtsvelli.
Keiliskonan er mætt til leiks á LET Access mótaröðina sem fram fer að þessu sinni við landamæri Frakklands og Sviss.
Leikið er á Association du Golf & Country Club de Bossey en mótaröðin er sú næst sterkasta hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki í Evrópu.
Guðrún Brá hefur leik kl. 12:30 á fimmtudag og kl. 8:00 á föstudag.