Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, hóf leik í morgun á LET Evrópumótaröðinni sem fer fram á Holzhäusern vellinum í Sviss 8.-10. september. Mótið heitir VP Bank Swiss Ladies Open.
Mótið í Sviss er það 16. á tímabilinu hjá þrefalda Íslandsmeistaranum úr Keili í Hafnarfirði.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í Sviss.
Guðrún Brá er í 143. sæti stigalista LET Evrópumótaraðarinnar en framundan er lokakafli keppnistímabilsins.
Til þess að halda fullum keppnisrétti á LET Evrópumótaröðinni 2023 þurfa keppendur að vera í einu af 60 efstu sætunum á stigalistanum í lok tímabilsins.