Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR keppa á LET Access mótaröðinni í þessari viku.
Að þessu sinni er keppt á Englandi. Mótið heitir Get Golfing Womens Championship – og er leikið á The Club Mill Green.
Mótið hefst föstudaginn 30. ágúst og er það hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.
Leiknir verða þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag.
Þetta er áttunda mótið hjá Ragnhildi á þessu tímabili en hún er í sæti nr. 72 á stigalistanum – nánar hér: Guðrún Brá er að leika á sínu áttunda móti á tímabilinu en hún er í sæti nr. 54. á stigalistanum – nánar hér: