Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR keppa á LET Access mótaröðinni í þessari viku.
Að þessu sinni er keppt í Frakklandi. Mótið heitir Lavaux Ladies Open.
Mótið hófst í dag, miðvikudaginn 18. september, og er það hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.
Leiknir verða þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag.
Þetta er tíunda mótið hjá Ragnhildi á þessu tímabili en hún er í sæti nr. 81 á stigalistanum – nánar hér: Guðrún Brá er að leika á sínu ellefta móti á tímabilinu en hún er í sæti nr. 28. á stigalistanum – nánar hér: