Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR hefja leik þann 14. júní á móti sem fram fer á Panorama golfsvæðinu í Tékklandi.
Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.
Leiknir verða þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag.
Þetta er þriðja mótið hjá Ragnhildi á þessu tímabili en hún er í sæti nr. 31 á stigalistanum – nánar hér: Guðrún Brá er að leika á sínu öðru móti á tímabilinu en hún er í sæti nr. 62. á stigalistanum – nánar hér:
Þetta er fyrsta mótið hjá Guðrúnu Brá og Ragnhildi á þessu ári. Þær eru báðar með keppnisrétt á LET Access á þessu tímabili og gætu einnig fengið tækifæri á mótum á LET Evrópumótaröðinni.