Arnar Daði Svavarsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson, báðir úr GKG, hófu leik í dag á sterku alþjóðlegu móti sem fram fer á Lough Erne golfsvæðinu á Norður-Írlandi.
Keppt er í ýmsum aldursflokkum á þessu móti og eru íslensku keppendurnir efstir í sínum flokkum eftir fyrsta keppnisdaginn.
Arnar Daði, sem er 13 ára, er efstur í drengjaflokki 15 ára og yngri.
Gunnlaugur Árni, sem er 17 ára, er efstur í flokki pilta 19 ára og yngri.
Báðir léku þeir á 71 höggi eða pari vallar.


Mótið er boðsmót þar sem að landsmeisturum víðsvegar úr Evrópu er boðið að taka þátt. Meistaramót landsmeistara er haldið á Lough Erne vellinum sem Sir Nick Faldo hannaði.
Markmið mótshaldara er að gefa efnilegum kylfingum og landsmeisturum tækifæri til þess að upplifa stórmót á frábærum velli í keppni við jafnaldra víðsvegar úr veröldinni.
Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit frá mótinu: