Á myndinni má sjá sveitina ásamt liðstjórunum tveimur. Frá vinstri: Einar Gunnarsson liðstjóri, Lárus Garðar Long, Rúnar Þór Karlsson, Hallgrímur Júlíusson, Gunnar Geir Gústafsson, Daníel Ingi Sigurjónsson, Karl Haraldsson, Sigurbergur Sveinsson, Kristófer Tjörvi Einarsson og Sigurður Bragason liðstjóri.
Auglýsing

Golfklúbbur Vestmannaeyja leikur í 1. deild karla að ári á Íslandsmóti golfklúbba. GV sigraði Golfklúbb Selfoss í úrslitaleik um sæti í efstu deild í dag en leikið var í Vestmannaeyjum.

Úrslitaleikurinn var spennandi og réðust úrslitin á 18.holu í lokaleiknum. Daníel Ingi Sigurjónsson átti glæsilegt högg inn á flöt, setti innan við metra frá holu og kláraði púttið svo af öryggi fyrir sigri í sínum leik og þar með þriðja vinning GV.

Áður höfðu þeir Karl Haraldsson og Sigurbergur Sveinsson sigrað fjórmenning og Lárus Garðar Long sigrað sinn leik örugglega.

Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal fjölmargra áhorfenda sem höfðu komið sér fyrir við átjándu flötina.


Lokastaðan í 2. deild karla:

*GV leikur í efstu deild að ári en GÍ fellur í 3. deild.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ