Hákon Örn Magnússon, GR, hefur leik þann 21. febrúar á Nordic Golf League mótaröðinni á Spáni. Mótaröðin er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.
Keppt er á Empordá vellinum sem er fyrir norðan borgina Barcelona á Spáni.
Mótin á Spáni eru hluti af GolfStar Winter Series á Nordic Golf League mótaröðinni – en flest mótin á þessari mótaröð fara fram í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Fyrsta mótið í þessari keppnistörn hjá Hákoni fór fram dagana 17.-19. febrúar. Þar endaði Hákon Örn í 39. sæti á +1 samtals (71-71-73)
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á mótinu sem fram fer 21.-23. febrúar.
Smelltu hér fyrir keppnisdagskrá Nordic Golf League á árinu 2023.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á mótinu sem fram fer 17.-19. febrúar.
Í lok febrúar verða enn fleiri íslenskir keppendur á þessari mótaröð þegar PGA Catalunya Spring Series hefst á samnefndnum velli. Þar verða tvö mót, það fyrra fer fram 26.-28. febrúar og það síðara fer fram 2.-4. mars.
Eftirtaldir kylfingar hafa skráð sig til leiks á þau mót: Andri Þór Björnsson, Axel Bóasson, Elvar Kristinsson, Haraldur Franklín Magnús, Hákon Örn Magnússon og Arnór Tjörvi Þórsson.

Á Nordic Golf League mótaröðinni gefst tækifæri til þess að komast inn á Challenge Tour, Áskorendamótaröðina, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson hafa allir komist inn á þá mótaröð með góðum árangri á Nordic Golf League mótaröðinni.
Fimm efstu á stigalista Nordic Golf League í lok tímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour – og einnig er hægt að tryggja sér keppnisrétt á þeirri mótaröð með því að sigra á þremur eða fleiri mótum á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem enda í sætum 6-10 á stigalista mótaraðarinnar fá takmarkaðan keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili.
