Áhugamennskunefnd GSÍ hefur ákveðið að hámarksverðmæti verðlauna til áhugamanna í golfmótum skuli árið 2020 vera kr. 90.000.
Verðmæti ferðavinninga má þó vera allt að kr. 180.000.
Eins og endranær er miðað er við smásöluverðmæti vinnings.
Eftirtaldar reglur gilda einnig um verðlaunafé:
- Ekki má veita viðtöku verðlaunum, sem eru greidd út í peningum eða ávísun á peninga.
- Vinni keppandi til fleiri en einna verðlauna í sama móti (eða mótasamfellu) má samanlagt verðmæti þeirra ekki vera umfram kr. 90.000. Þetta tekur einnig til aukaverðlauna svo sem fyrir lengsta upphafshögg og högg næst holu, eða verðlaun sem veitt eru samkvæmt útdrætti úr skorkortum eða úrdrætti úr potti þar sem golfleikur er skilyrði fyrir þátttöku.
- Ekkert hámark gildir um verðlaun fyrir að fara holu í höggi. Þau mega auk þess koma að fullu til viðbótar sérhverjum öðrum verðlaunum í sama móti.
Skipuleggjendum og bakhjörlum golfmóta er bent á að hafa fyrirfram samband við nefndina eða skrifstofu GSÍ ef vafi leikur á hvort fyrirhuguð verðlaun eru í samræmi við gildandi reglur. Þær upphæðir, sem tilgreindar eru í bréfi þessu, gilda til loka árs 2020.
Með óskum um gleðilegt golfsumar.
Áhugamennskunefnd GSÍ.
Gísli Guðni Hall, formaður ggh@law.is
Guðmundur Friðrik Sigurðsson
Hafdís Helgadóttir