Fimm íslenskir kylfingar tóku þátt á vetrarmótaröðinni á Nordic Tour atvinnumótaröðinni á Spáni. Mótaröðin er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu. Mótið fór fram á sama stað og í síðustu viku eða á Lumine golfsvæðinu á Spáni.
Haraldur Franklín Magnús endaði í 5. sæti á -8 en hann lék frábært golf á tveimur síðustu hringjunum (72-68-68).
Guðmundur Ágúst endaði í 13. sæti á -5 (71-67-71).
Aron Bergsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á +5 samtals.
Axel Bóasson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á +7.
Andri Þór Björnsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á +15 samtals.
Kylfingarnir Aron Bergsson hefur keppt fyrir GKG hér á landi en er skráður í golfklúbb í Svíþjóð á þessu móti. Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR).
Guðmundur Ágúst var efstur á stigalistanum á Nordic Tour fyrir þetta mót en hann er í þriðja sæti eftir þetta mót. Haraldur Franklín er í 11. sæti á stigalistanum.
Stigalistinn er í heild sinni hér:
Það er að miklu að keppa á stigalista Nordic Tour. Fimm stigahæstu í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Áskorendamótaröðinin (Challenge Tour) sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu á eftir sjálfri Evrópumótaröðinni.