Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hefur lokið keppni á Opna ástralska mótinu (ISPS HANDA Australian Open) sem fram fer á The Lakes vellinum í Sydney dagana 30. nóvember – 3. desember.
Mótið eru hluti af DP World Tour atvinnumótaröðinni – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
Þetta er annað mótið í röð hjá Haraldi Franklín í Ástralíu á DP World Tour mótaröðinni en hann endaði í 33. – 39. sæti á Royal Queensland vellinum í Brisbane á PGA á meistaramóti Ástralíu (Australian PGA Championship) – sem fram fór í síðustu viku.
Á þessu móti eru keppnisvellirnir tveir, The Australian Golf Club og The Lakes GC. Haraldur Franklín lék fyrstu tvo hringina á pari vallar samtals (72-71). Hann fékk alls 8 fugla (-1) og 8 skolla (+1) og 20 holur lék hann á pari. Haraldur Franklín var í 79. sæti eftir 36 holur en niðurskurðurinn var -2.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á ISPS HANDA Australian Open.
Sýnt er frá mótinu á Viaplay.is
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á ISPS HANDA Australian Open.
Haraldur Franklín fékk boð um að taka þátt á þessum mótum í Ástralíuy með skömmum fyrirvara en á meðal keppenda eru heimsþekktir kylfingar. Má þar nefna heimamennina. Min woo Lee sem sigraði á mótinu í síðustu viku, Cameron Smith, Cam Davis, Geoff Ogilvy, Adam Scott, Aaron Baddeley. Skotinn Robert MacIntyre sem lék með Ryderliði Evrópu er með á þessu móti og Pólverjinn Adrian Meronk mætir í titilvörnina en hann sigraði á fjórum mótum á síðasta tímabili á DP World Tour.
Haraldur Franklín lék á lokaúrtökumótinu fyrir DP World Tour nýverið þar sem hann komst í gegnum niðurskurð mótsins og endaði í 77. sæti. Með þeim árangri náði hann að tryggði sér keppnisrétt á flestum mótum á Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, á næsta tímabil. Mótin í Ástralíu eru því kærkomið tækifæri fyrir Harald Franklín.