Haraldur Franklín Magnús er einn fremsti kylfingur landsins og er þessa stundina í efsta sæti B59 Hótel mótsins sem hófst í dag á Akranesi.
GR-ingurinn tók til hendinni eftir hringinn í dag á Garðavelli á æfingasvæði Leynis.
Haraldur Franklín hafði sjálfur frumkvæði að því að fá að hreinsa upp boltana af æfingasvæðinu.
Eins og sjá má á þessum myndum hafði Haraldur gaman af því að aka um æfingasvæðið og týna upp boltana sem voru ansi margir úti á svæðinu eftir öll upphitunarhögg fremstu kylfinga landsins í dag.
Atvinnukylfingurinn er með keppnisrétt á næst sterkustu mótaröð Evrópu, Challenge Tour, og hann er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur leikið á einu af fjórum risamótunum í golfi atvinnukylfinga.