Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru báðir á meðal keppenda á næst síðasta móti tímabilsins á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour. Keppt er á Empordà vellinum í Girona dagana 19.-22. október.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Haraldur Franklín Magnús lék vel á síðasta móti sem lauk í gær á Empordà vellinum í Girona – þar sem hann lék á 13 höggum undir pari vallar sem skilaði honum í 10. sæti.
Lokamótið fer síðan fram dagana 4.-7. nóvember á T-Golf & Country Club á Mallorca en þangað komast 45 efstu á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.
Aðeins tveir íslenskir kylfingar hafa náð að komast inn á lokamótið á Áskorendamótaröðinni, Birgir Leifur Hafþórsson árið 2017 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst inn í fyrra.
Birgir Leifur endaði í 35. sæti á stigalistanum árið 2017 þar sem hann sigraði á einu móti, fyrstur íslenskra kylfinga. Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti í fyrra.
Haraldur Franklín er þessa stundina í 46. sæti á stigalistanum en hann hefur hæst farið í sæti nr. 38. Besti árangur hans á tímabilinu er 2. sætið á B-NL mótinu sem fram fór Hollandi í lok ágúst.
Í upphafi ársins var Haraldur Franklín í sæti nr. 102 á stigalistanum en hann hefur leikið á 18 mótum á Áskorendamótaröðinni á tímabilinu. Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 85. sæti á stigalistanum og besti árangur hans var 14. sæti.
Guðmundur Ágúst er í 87. sæti á stigalistanum á Áskorendamótaröðinni. Besti árangur hans á tímabilinu er 8. sæti á B-NL mótinu sem fram fór Hollandi í lok ágúst. Á þessu tímabilinu hefur Guðmundur Ágúst leikið á 18 mótum á Áskorendamótaröðinni.
Það er að miklu að keppa á lokamótinu á Mallorca. Þar tryggja 20 efstu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni og þeir sem eru í sætum 21.-45. fá takmarkaðan keppnisrétt á stærstu atvinnumótaröð Evrópu.