Haraldur Franklín Magnús. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur er í hópi 10 efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2018. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu og verður því lýst þann 29. desember. Þetta er í 63. sinn sem kjörið fer fram.

Þetta er í tólfta sinn sem kylfingur kemst inn á topp 10 listann í kjörinu á íþróttamanni ársins og er þetta í fyrsta sinn sem Haraldur Franklín er tilnefndur sem íþróttamaður ársins.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, var kjörin í fyrra íþróttamaður ársins og er hún eini kylfingurinn sem hefur fengið þetta sæmdarheiti.

Ólafía varð í þriðja sæti í þessu kjöri árið 2016.

Alls hafa fjórar konur úr röðum GSÍ verið á meðal 10 efstu í þessu kjöri og alls hafa tólf kylfingar verið á topp 10 listanum frá því að kjörið fór fyrst fram.

Úlfar Jónsson hefur náð næst bestum árangri í kjörinu á Íþróttamanni ársins en hann varð í 2.-10. sæti árið 1987 þegar níu íþróttamenn deildu sætum 2.-10.

Sigurður Pétursson varð í 3. sæti árið 1985 og jafnaði Ólafía því afrek Sigurðar árið 2016.

Eftirfarandi íþróttamenn eru tilnefndir að þessu sinni og eru þau í stafrófsröð:

Íþróttamaður ársins

Alfreð Finnbogason (Knattspyrna)
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir (Frjálsíþróttir)
Guðjón Valur Sigurðsson (Handknattleikur)
Gylfi Þór Sigurðsson (Knattspyrna)
Haraldur Franklín Magnús (Golf)
Jóhann Berg Guðmundsson (Knattspyrna)
Júlían J. K. Jóhannsson (Kraftlyftingar)
Martin Hermansson (Körfuknattleikur)
Sara Björk Gunnarsdótti (Knattspyrna)
Valgarð Reinhardsson (Fimleikar)

Lið ársins

Karlalið ÍBV í handbolta
Landslið Íslands í golfi
Kvennalið Íslands í hópfimleikum

Þjálfari ársins
Arnar Pétursson (Handknattleikur ÍBV)
Þorsteinn Halldórsson (Knattspyrna, kvennalið Breiðabliks)
Kristján Andrésson (Handknattleikur, karlalandslið Svíþjóðar)

30 félagsmenn í Samtökum íþróttafréttamanna greiddu atkvæði að þessu sinni. Kjörinu verður lýst á sameiginlegu hófi Samtaka íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands þann 29. desember í Hörpu, í beinni útsendingu á RÚV.

Eftirtaldir kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins og í sviganum er sætið sem kylfingurinn endaði í.

1963: Magnús Guðmundsson (10.)
1965: Magnús Guðmundsson (7.)
1977: Björgvin Þorsteinsson (9.)
1979: Hannes Eyvindsson (8.)
1981: Ragnar Ólafsson (6.)
1984: Ragnar Ólafsson (9).
1985: Sigurður Pétursson (3.)
1986: Úlfar Jónsson (9.)
1987: Úlfar Jónsson (2.-10.)
1988: Úlfar Jónsson (5.)
1990: Úlfar Jónsson (4.)
1992: Úlfar Jónsson (5.)
1993: Úlfar Jónsson (5.) Þorsteinn Hallgrímsson (8.)
1996: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
1997: Birgir Leifur Hafþórsson (6.)
1998: Ragnhildur Sigurðardóttir (9.)
2000: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2001: Birgir Leifur Hafþórsson (6.)
2002: Ólöf María Jónsdóttir (9.)
2003: Ragnhildur Sigurðardóttir (9.)
2004: Ólöf María Jónsdóttir (4.), Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2005. Ólöf María Jónsdóttir (8.)
2006: Birgir Leifur Hafþórsson (4.)
2007: Birgir Leifur Hafþórsson (5.)
2011: Ólafur Björn Loftsson (10.)
2016: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (3.)
2017: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (1.), Valdís Þóra Jónsdóttir (9).

(1) Magnús Guðmundsson (2), (2) Björgvin Þorsteinsson, (3) Hannes Eyvindsson, (4) Ragnar Ólafsson (2), (5) Sigurður Pétursson, (6) Úlfar Jónsson (6), (7) Þorsteinn Hallgrímsson, (7) Birgir Leifur Hafþórsson (7), (8) Ragnhildur Sigurðardóttir (2), (9) Ólöf María Jónsdóttir (3), (10) Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (3), (11) Valdís Þóra Jónsdóttir (1), (12) Haraldur Franklín Magnús (1).

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ