Auglýsing

Henning Darri Þórðarson sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ sem fram fór í gær á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Henning, sem er úr Keili í Hafnarfirði, hafði betur í úrslitum gegn Arnóri Snæ Guðmundssyni frá Dalvík.

Þetta er í fyrsta sinn sem Henning Darri sigrar á þessu móti en þetta var í 12. sinn sem þetta mót fer fram.

Keppnisfyrirkomulagið í Unglingaeinvíginu er með þeim hætti að fyrir hádegi er leikinn undankeppni þar sem að 10 efstu kylfingarnir komast í sjálft Unglingaeinvígið. Þar eru leiknar 9 holur og fellur einn keppandi úr leik á hverri holu þar til einn stendur uppi sem sigurvegari. Ef kylfingar voru jafnir á hæsta skorinu á holu fóru þeir í „einvígi“ þar sem sett var upp létt þraut við hverja flöt og sá sem var fjærst holu eftir höggið féll úr leik.

Henning Darri Þórðarson, sigurvegari Unglingaeinvígið 2016.
Henning Darri Þórðarson, sigurvegari Unglingaeinvígsins 2016.

Úrslit í Samsung – Unglingaeinvíginu 2016:

Henning Darri Þórðarson, GK
Arnór Snær Guðmundsson, GHD
Viktor Ingi Einarsson, GR
Hlynur Bergsson, GKG
Ingvar Andri Magnússon, GR
Sigurður Blumenstein, GR
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Ragnar Már Ríkharðsson, GM
Björn Óskar Guðjónsson, GM
Dagbjartur Sigurbergsson, GR
Sigurður Arnar Garðarsson, GKG

Sigurvegarar Samsung – Unglingaeinvígsins frá upphafi:

2005 – Sveinn Ísleifsson
2006 – Guðni Fannar Carrico
2007 – Andri Þór Björnsson
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson
2009 – Andri Már Óskarsson
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2011 – Ragnar Már Garðarson
2012 – Aron Snær Júlíusson
2013 – Ingvar Andri Magnússon
2014 – Ingvar Andri Magnússon
2015 – Björn Óskar Guðjónsson
2016 – Henning Darri Þórðarson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ