Auglýsing

Dómaranefnd GSÍ mun standa fyrir héraðsdómaranámskeiði í vor eins og hefur verið gert síðustu ár. Fyrirlestrar verða 18., 21., 26., og 28. mars 2019, kl. 19:00 – 22:00. Fyrirlestrar eru sendir út á netinu (Youtube) og einnig teknir upp. Hægt er að skoða upptökuna seinna ef menn eru uppteknir þegar útsendingin á sér stað.

Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.

Prófið verður rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir golfara á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.

Það er þó ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið.

Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is.

Dómaranefndin vill skora á forráðamenn golfklúbba til ræða við þá félaga sem þeir telja að gætu haft áhuga á að starfa fyrir klúbbinn á sviði mótahalds og dómgæslu og hvetja þá til að afla sér dómararéttinda.

Með kveðju
Dómaranefnd GSÍ

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ