Hlaðvarp Golfsambands Íslands. Í tilefni 80 ára afmælis GSÍ eru þessi hlaðvarpsþættir framleiddir. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, er viðmælandinn í þessum þætti.
Guðmundur Ágúst náði þeim frábæra árangri nýverið að tryggja sér keppnisrétt á DP World Tour – sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki.
Hann er aðeins annar íslenski karlkylfingurinn sem nær þeim árangri – en Birgir Leifur Hafþórsson braut ísinn árið 2006 og 2007.
Framundan er spennandi keppnistímabil hjá Guðmundi sem hefur leik á sínu fyrsta móti fimmtudaginn 24. nóvember í Suður-Afríku.
Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóri GSÍ er stjórnandi þáttarins en Kristín María Þorsteinsdóttir, móta – og kynningarstjóri GSÍ hefur einnig verið í því hlutverki en hún verður í barneignaleyfi á næstu mánuðum.