Hlynur Bergsson, GKG, hefur leik í dag á Evrópumóti áhugakylfinga í keppni einstaklinga. Mótið fer fram á Parador Campo de Golf El Saler vellinum í Valencia á Spáni.
Völlurinn er einn af allra þekktustu keppnisvöllum Spánar og Evrópu – og hefur úrtökumót fyrir Evrópumótaröð karla farið fram á þessum velli. Völlurinn er um 6.300 metrar á þessu móti.
Hlynur, sem stundar háskólanám í Bandaríkjunum, hefur leik kl. 13:25 að íslenskum tíma í dag. Keppnisformið er höggleikur og verða leiknar 72 holur á fjórum keppnisdögum.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Þetta er í 35. sinn sem mótið fer fram.
Alls eru 144 keppendur og koma þeir frá 42 löndum. Fyrst var keppt á þessu móti árið 1986 og aðeins allra bestu áhugakylfingar veraldar fá keppnisrétt á þessu móti.
Margir þekktir kylfingar hafa staðið uppi sem sigurvegari á þessu móti. Má þar nefna Rory McIlroy (2006, Sergio Garcia (1995), Lee Westwood (1993), Paul Casey (1999), Danny Willet (2007) og Tommy Fleetwood (2010).
Daninn Nicolai Højgaard sigraði á þessu móti árið 2018 og Norðmaðurinn Viktor Hovland endaði tvívegis í öðru sæti á EM einstaklinga, 2016 og 2018.
Siguvegarinn á EM einstaklinga fær keppnisrétt á Opna mótinu sem hefst eftir þrjár vikur á St. Andrews í Skotlandi – en The Open fer þá fram í 150. skipti.