/

Deildu:

Auglýsing

Bjarki Pétursson og Hlynur Bergsson eru á meðal keppenda á Great Northern Challenge mótinu sem er hluti af Nordic Golf League sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu. 

Golfvöllurinn er rétt við borgina Óðinsvé við bæinn Kerteminde.

Bjarki hefur tekið þátt á 22 mótum á þessari mótaröð á þessu tímabili. Hann er í 17. sæti stigalistans. Besti árangur hans er 2. sætið en hann varð í 6. sæti í síðustu viku. Nánar hér:

Hlynur hefur einnig keppt á 22 mótum en hann er á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur. Hann er í 48. sæti á stigalistanum. Nánar hér:

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit í þessu móti.   

Smelltu hér fyrir stigalistann á Nordic Golf League 2024:

Það er að miklu að keppa á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem ná að sigra á þremur mótum á tímabilinu fá keppnisrétt á Challenge Tour – Áskorendamótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Fimm efstu sætin á stigalistanum gefa einnig keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili – en heildarfjöldi kylfinga sem fá keppnisrétt á Challenge mótaröðinni er 5.

Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafa allir farið þessa leið til þess að öðlast keppnisrétt á Challenge Tour. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ