Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu sem fram fer á West Lancashire vellinum í nágrenni við Liverpool dagana 25.-29. ágúst
Hulda Clara tapaði naumlega, 2/1, gegn Emily Price frá Englandi, í 32 manna úrslitum.
Hulda Clara endaði í 29. sæti í forkeppninni, sem tryggði henni sæti í 1. umferð holukeppninnar ásamt 63 öðrum keppendum. Hulda Clara sigraði í fyrstu viðureigninni með glæsilegu pútti á 20. holu í bráðabana gegn Anna Zanusso frá Ítalíu.
Ítalski kylfingurinn var með yfirhöndina allt þar til á lokakafla viðureignarinnar þegar Hulda Clara náði að jafna og tryggja sigurinn með púttinu hér fyrir neðan.
Hér er hægt að fylgjast með viðureignum Huldu Clöru í holukeppninni.
Hulda Clara endaði í 29. sæti í höggleikskeppninni á +3 eða 75 höggum. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, féll naumlega úr leik en hann lék á +6 eða 77 höggum. Hann var einu höggi frá því að komast í 64 manna úrslit mótsins.
Fyrstu umferð af alls tveimur í höggleiknum í karla – og kvennaflokki var felld niður vegna veðurs. Keppni var frestað í tvígang í gær vegna veðurs og ákvað mótsstjórn að fella niður fyrstu umferðina. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, var á meðal efstu kylfinga í kvennaflokknum á +2 eftir 17 holur og Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, var um miðjan keppnishóp í karlaflokknum.
Keppendur fengu því aðeins einn keppnisdag í höggleikskeppninni þar sem keppt er um að komast í hóp 64 efstu sem fá tækifæri til þess að keppa í holukeppninni sem tekur við af höggleikskeppninni.
Mótin eru í hæsta styrkleikaflokki áhugakylfinga á heimsvísu og eiga sér bæði langa sögu.
Hulda Clara keppir á West Lancashire vellinum í nágrenni við Liverpool dagana 25.-29. ágúst en Dagbjartur keppir á Royal Birkdale vellinum dagana 25.-30. ágúst.
Opna breska meistaramótið í karlaflokki, The Open, hefur m.a. verið haldið 10 sinnum á Royal Birkdale vellinum.
Að forkeppninni lokinni komast 64 efstu inn í holukeppnina. Í þeirri keppni eru leiknar tvær umferðir á dag þar til að úrslitin ráðast í úrslitaleik um sigurinn.
Það er til mikils að vinna á þessum mótum. Sigurvegarinn á Opna breska áhugamannamótinu í karlaflokki fær m.a. boð um að taka þátt á atvinnumótum á borð við Opna breska meistaramótið og Masters mótinu.
Siguvegarinn hjá konunum á Opna breska áhugamannamótinu fær einnig boð um að taka þátt á risamótum á borð við AIG meistaramótið, Opna bandaríska meistaramótið, Evian meistaramótið og Augusta National áhugamannamótið.
Á Royal Birkdale vellinum var Dagbjartur á meðal 120 keppenda en á West Lancashire vellinum var Hulda Clara á meðal 100 keppenda sem taka þátt.