Golfsamband Íslands hefur gefið út nokkur myndbönd sem eru ætluð sem fræðsluefni fyrir kylfinga.
Í myndböndunum eru ýmis atriði sem tengjast golfleiknum til umfjöllunar.
Efnið ætti að nýtast öllum kylfingum en þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfíþróttinni ættu að fá svör við ýmsum spurningum í þessum myndböndum.
Á næstu misserum er markmiðið að búa til enn fleiri slík myndbönd.
Einnig má benda á fréttaflokkinn „komdu í golf“ á golf.is þar sem að ýmsum fróðleik hefur verið safnað saman fyrir þá sem eru að byrja í golfi.