Site icon Golfsamband Íslands

Hvaleyrarbikarinn 2021 – skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 14. júlí

Hvaleyrarbikarinn.

Hvaleyrarbikarinn 2021 fer fram dagana 15.-18. júlí en mótið er hluti af stigamótaröð GSÍ. Opið er fyrir skráningu en skráningarfrestur er til 23:59 í dag, miðvikudaginn 14. júlí 2021. Keppnisfyrirkomulag Hvaleyrarbikarsins er höggleikur án forgjafar, alls 54 holur.

Smelltu hér til að skrá þig.

Keppnisskilmálar

Keppnisfyrirkomulag – Höggleikur án forgjafar, 54 holur.

Mótið er hluti af stigamótaröð GSÍ. Leikið er samkvæmt reglugerð um stigamót GSÍ, almennum keppnisskilmálum GSÍ og almennum staðarreglum GSÍ, auk þessara viðbóta við keppnisskilmála og viðbóta við staðarreglur.

Flokkar – Keppt er í karlaflokki (hvítir teigar) og kvennaflokki (bláir teigar).

Þátttökuréttur – Hámarksfjöldi keppenda í mótinu er 72. 

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Ef fjöldi skráðra leikmanna fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk, þ.e.a.s. þeir kylfingar sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki.

Þó skulu að lágmarki 18 keppendur fá þátttökurétt í hvorum flokki. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

 Rástímar verða birtir fimmtudaginn 15 júlí á hádegi

Exit mobile version