Fyrsta mót tímabilsins á stigamótaröð GSÍ 2023, Leirumótið, fer fram á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 2.-4. júní 2023.
Golfklúbbur Suðurnesja er framkvæmdaraðili mótsins og gildir mótið til stiga á heimslista áhugakylfinga. Þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn.
Alls eru 124 keppendur skráðir til leiks sem er talsverð fjölgun frá því í fyrra þegar Leirumótið fór fram á stigamótaröð GSÍ. Alls eru 32 konur og 92 karlar.
Keppendur koma frá 14 klúbbum og níu klúbbar eru með keppendur í báðum flokkum, kvenna – og karla.
GKG, GR og GM eru samtals með tæplega 60% af öllum keppendum mótsins.
Þriðji hver keppandi í kvennaflokki er frá Golfklúbbi Mosfellsbæjar sem er með 10 keppendur af alls 32.
Smelltu hér fyrir stöðuna í mótinu.
Smelltu hér fyrir rástímana í mótinu.
Hólmsvöllur í Leiru kemur vel undan vetri og hafa keppendur gefið vellinum góða dóma eftir æfingahringi þeirra undanfarna daga og vikur. Starfsfólk GS hefur lagt mikla vinnu í að gera völlinn eins góðan hægt er – og hafa margir lagt hönd á plóginn í þeim verkefnum. Þar má nefna að Örn Ævar Hjartarson, fyrrum Íslandsmeistari í golfi og þaulreyndur landsliðskylfingur, er í teyminu sem sér um að ákveðan holustaðsetningar og uppsetningu vallar á keppnisdögunum þremur.
Karen Guðnadóttir, GS, á vallarmetið á bláum teigum sem er 68 högg (-4) og var sett þann 7. júlí 2016.
Vallarmetið af hvítum teigum er 65 högg (-7) og það eru tveir kylfingar sem deila þeim árangri.
Gunnar Þór Jóhannsson, GS, 65 högg (-7) 30. júní 2001 og Axel Bóasson, GK, 65 högg (-7) 21. júlí 2011.
Íslandsmeistarinn frá árinu 2022, Kristján Þór Einarsson, GM, er á meðal keppenda. Kristján Þór er tvöfaldur Íslandsmeistari, 2008 og 2022. Heiðar Davíð Bragaon, GA, Íslandsmeistari 2005, á Hólmsvelli í Leiru er einnig á meðal keppenda – en hann var Golfklúbbnum Kili úr Mosfellsbæ, þegar hann sigraði á Íslandsmótinu.
Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, tekur þátt á þessu móti. Hún er með lægstu forgjöfina í kvennaflokki -3.8, sem er einnig fimmta lægsta forgjöf mótsins. Kristófer Orri Þórðarson, GKG, er með lægstu forgjöf mótsins, -4.2 og þar á eftir koma Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, -4.1, Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, -4.1.
Klúbbur | Karlar | Konur | Samtals |
Golfklúbbur Kópvogs og Garðabæjar, GKG | 18 | 8 | 26 |
Golfklúbbur Reykjavíkur, GR | 17 | 7 | 24 |
Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM | 13 | 10 | 23 |
Golfklúbbur Suðurnesja, GS | 9 | 1 | 10 |
Golfklúbbur Selfoss, GOS | 7 | 1 | 8 |
Golfklúbburinn Oddur, GO | 6 | 2 | 8 |
Golfklúbburinn Keilir, GK | 6 | 1 | 7 |
Golfklúbbur Akureyrar, GA | 5 | 1 | 6 |
Nesklúbburinn, NK | 5 | 0 | 5 |
Golfklúbburinn Leynir, GL | 2 | 1 | 3 |
Golfklúbbur Vestmannaeyja, GV | 1 | 0 | 1 |
GÖ | 1 | 0 | 1 |
GFH | 1 | 0 | 1 |
GEY | 1 | 0 | 1 |
Meðalaldur – yngst og elst
- Meðalaldur keppenda í kvennaflokki er 21 ár og 25 ár í karlaflokki.
- Yngsti keppandinn í karlaflokki er Hjalti Kristján Hjaltason, GM, en hann er fæddur árið 2010 og er því 13 ára.
- Hjalti Pálmason, GM, faðir Hjalta, er elsti keppandinn í mótinu en hann er 54 ára.
- Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, systir Hjalta Kristjáns, er næst yngsti keppandinn í kvennaflokki en hún er fædd árið 2008 og er 15 ára.
- Eva Fanney Kristjánsdóttir, GKG, er yngsti keppandinn í kvennaflokki en hún er fædd árið 2009 og er því 14 ára.
- Elstu keppendurnir í kvenna – og karlaflokki eru bæði úr GM, en Hekla Ingunn Daðadóttir er elst í kvennaflokki, 46 ára.
Fjölskyldumót
- Það eru ýmsar fjölskyldutengingar hjá keppendum í Leiru-mótinu.
- Eins og áður segir er Hjalti Pálmason að keppa á sama móti og dóttir hans og sonur.
- Hekla Ingunn Daðadóttir er einnig að upplifa þetta mót ásamt syni sínum, Andra Má Guðmundssyni, sem er fæddur árið 2001.
- Heiðar Davíð Bragason, íþróttastjóri Golfklúbbs Akureyrar, sem fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á Hólmsvelli í Leiru árið 2005, er á meðal keppenda líkt og sonur hans, Veigar Heiðarsson. Veigar er fæddur árið 2006 og verður 17 ára í desember en faðir hans er fæddur árið 1977.
- Systkinin Helga Signý Pálsdóttir og Böðvar Bragi Pálsson, bæði úr GR, eru á meðal keppenda en þau sigruðu bæði í flokki 17-21 árs á unglingamótaröðinni í síðustu viku. Systkinin Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, og Bjarni Þór Lúðvíksson, NK, eru með líkt og bræðurnir úr GKG, þeir Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson. Tvíbuarsysturnar úr GM Auður Bergrún Snorradóttir og Birna Rut Snorradóttir eru á meðal keppenda.
Leikfyrirkomulag
Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70% af fjölda keppenda úr hvorum flokki. Ef keppendur eru jafnir í neðstu sætum ofan niðurskurðarlínu skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSÍ.
Keppandalistinn er hér fyrir neðan, raðað eftir forgjöf.
Nafn | Klúbbur | Forgjöf | Aldur |
Ragnhildur Kristinsdóttir | GR | -3.8 | 26 |
Heiðrún Anna Hlynsdóttir | GOS | -2.3 | 23 |
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir | GR | -1.9 | 21 |
Berglind Björnsdóttir | GR | -1.1 | 31 |
Andrea Ýr Ásmundsdóttir | GA | -0.7 | 21 |
Anna Júlía Ólafsdóttir | GKG | -0.3 | 23 |
Saga Traustadóttir | GKG | -0.1 | 25 |
Helga Signý Pálsdóttir | GR | 0.6 | 17 |
Kristín Sól Guðmundsdóttir | GM | 1 | 21 |
Berglind Erla Baldursdóttir | GM | 1.6 | 18 |
Fjóla Margrét Viðarsdóttir | GS | 2.1 | 16 |
Bjarney Ósk Harðardóttir | GR | 2.4 | 19 |
Ásdís Valtýsdóttir | GR | 2.4 | 21 |
Bryndís María Ragnarsdóttir | GK | 2.7 | 17 |
Karen Lind Stefánsdóttir | GKG | 2.7 | 16 |
Katrín Sól Davíðsdóttir | GM | 2.9 | 16 |
Eva Kristinsdóttir | GM | 2.9 | 19 |
Pamela Ósk Hjaltadóttir | GM | 3.4 | 15 |
Elísabet Ólafsdóttir | GKG | 3.4 | 16 |
Heiða Rakel Rafnsdóttir | GM | 4.1 | 17 |
Hrafnhildur Guðjónsdóttir | GO | 4.3 | 28 |
Auður Bergrún Snorradóttir | GM | 4.4 | 16 |
Gunnhildur Hekla Gunnarsdóttir | GKG | 5 | 18 |
Hekla Ingunn Daðadóttir | GM | 5.1 | 46 |
Auður Björt Skúladóttir | GO | 5.3 | 18 |
Elsa Maren Steinarsdóttir | GL | 5.3 | 32 |
Birna Rut Snorradóttir | GM | 5.5 | 16 |
Auður Sigmundsdóttir | GR | 5.7 | 19 |
Gabríella Neema Stefánsdóttir | GM | 5.8 | 16 |
Elísabet Sunna Scheving | GKG | 5.9 | 16 |
Íris Lorange Káradóttir | GKG | 6.2 | 23 |
Eva Fanney Matthíasdóttir | GKG | 7.4 | 14 |
Nafn | Klúbbur | Forgjöf | Aldur |
Kristófer Orri Þórðarson | GKG | -4.2 | 26 |
Sigurður Arnar Garðarsson | GKG | -4.1 | 21 |
Dagbjartur Sigurbrandsson | GR | -4.1 | 21 |
Arnór Ingi Finnbjörnsson | GR | -3.9 | 34 |
Hlynur Bergsson | GKG | -3.6 | 25 |
Kristján Þór Einarsson | GM | -3.6 | 35 |
Aron Emil Gunnarsson | GOS | -3.5 | 20 |
Böðvar Bragi Pálsson | GR | -3.5 | 22 |
Sigurður Bjarki Blumenstein | GR | -3.3 | 22 |
Jóhannes Guðmundsson | GR | -3.2 | 25 |
Egill Ragnar Gunnarsson | GKG | -2.9 | 22 |
Kristófer Karl Karlsson | GM | -2.9 | 23 |
Daníel Ísak Steinarsson | GK | -2.9 | 27 |
Birgir Björn Magnússon | GK | -2.6 | 26 |
Sverrir Haraldsson | GM | -2.5 | 23 |
Tómas Eiríksson Hjaltested | GR | -2.3 | 21 |
Hjalti Hlíðberg Jónasson | GKG | -2.2 | 21 |
Elvar Már Kristinsson | GR | -2.2 | 23 |
Lárus Ingi Antonsson | GA | -2.0 | 21 |
Viktor Ingi Einarsson | GR | -1.8 | 23 |
Lárus Garðar Long | GV | -1.8 | 24 |
Andri Már Óskarsson | GOS | -1.6 | 32 |
Jóhann Frank Halldórsson | GR | -1.5 | 19 |
Logi Sigurðsson | GS | -1.5 | 21 |
Pétur Þór Jaidee | GS | -1.5 | 21 |
Svanberg Addi Stefánsson | GK | -1.4 | 34 |
Bjarki Snær Halldórsson | GK | -1.3 | 21 |
Veigar Heiðarsson | GA | -0.9 | 17 |
Pétur Sigurdór Pálsson | GOS | -0.9 | 21 |
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson | GS | -0.8 | 48 |
Heiðar Davíð Bragason | GA | -0.7 | 20 |
Ragnar Már Garðarsson | GKG | -0.7 | 28 |
Björn Viktor Viktorsson | GL | -0.7 | 46 |
Ingi Þór Ólafson | GM | -0.4 | 22 |
Björgvin Sigmundsson | GS | -0.3 | 38 |
Eyþór Hrafnar Ketilsson | GA | -0.1 | 21 |
Hjalti Pálmason | GM | -0.1 | 27 |
Arnór Tjörvi Þórsson | GR | -0.1 | 54 |
Róbert Leó Arnórsson | GKG | 0.1 | 16 |
Guðjón Frans Halldórsson | GKG | 0.1 | 19 |
Bjarni Þór Lúðvíksson | NK | 0.1 | 19 |
Jóhannes Sturluson | GR | 0.1 | 19 |
Breki Gunnarsson Arndal | GKG | 0.2 | 20 |
Páll Birkir Reynisson | GR | 0.2 | 23 |
Bjarni Freyr Valgeirsson | GR | 0.3 | 22 |
Skúli Gunnar Ágústsson | GA | 0.5 | 17 |
Tómas Hugi Ásgeirsson | GK | 0.5 | 19 |
Sveinn Andri Sigurpálsson | GS | 0.6 | 20 |
Kjartan Óskar Guðmundsson | NK | 1.1 | 22 |
Róbert Smári Jónsson | GS | 1.3 | 21 |
Magnús Yngvi Sigsteinsson | GKG | 1.3 | 25 |
Bragi Arnarson | GR | 1.4 | 26 |
Rúnar Óli Einarsson | GS | 1.4 | 39 |
Andri Már Guðmundsson | GM | 1.6 | 20 |
Axel Óli Sigurjónsson | GO | 1.6 | 22 |
Arnór Daði Rafnsson | GM | 1.9 | 21 |
Ólafur Marel Árnason | NK | 2.0 | 21 |
Gunnar Þór Heimisson | GKG | 2.1 | 15 |
Sturla Höskuldsson | GFH | 2.1 | 48 |
Símon Leví Héðinsson | GOS | 2.2 | 22 |
Ævar Pétursson | GS | 2.2 | 27 |
Finnbogi Steingrímsson | GM | 2.2 | 42 |
Máni Páll Eiríksson | GOS | 2.3 | 22 |
Stefán Ragnar Guðjónsson | GS | 2.3 | 22 |
Orri Snær Jónsson | NK | 2.3 | 46 |
Arnar Daði Svavarsson | GKG | 2.4 | 14 |
Tristan Freyr Traustason | GL | 2.4 | 17 |
Ottó Axel Bjartmarz | GO | 2.5 | 19 |
Arnór Ingi Hlíðdal | GOS | 2.5 | 25 |
Aron Skúli Ingason | GM | 2.5 | 26 |
Karl Ottó Olsen | GR | 2.5 | 27 |
Andri Ágústsson | GM | 2.5 | 27 |
Stefán Þór Hallgrímsson | GM | 2.8 | 36 |
Óliver Máni Scheving | GKG | 2.9 | 21 |
Kristinn Sölvi Sigurgeirsson | GOS | 3.5 | 25 |
Halldór Viðar Gunnarsson | GR | 3.6 | 18 |
Bjarki Þór Davíðsson | GO | 3.7 | 32 |
Sindri Snær Skarphéðinsson | GÖ | 3.8 | 30 |
Heiðar Steinn Gíslason | NK | 3.9 | 17 |
Guðmundur Snær Elíasson | GKG | 4.0 | 17 |
Gunnar Guðjónsson | GO | 4.2 | 36 |
Hjalti Kristján Hjaltason | GM | 4.4 | 13 |
Skúli Ágúst Arnarson | GO | 4.5 | 28 |
Sigurður Árni Þórðarson | GO | 4.5 | 40 |
Magnús Bjarnason | GEY | 4.6 | 17 |
Magnús Ingi Hlynsson | GKG | 4.6 | 49 |
Birkir Þór Kristinsson | GK | 4.7 | 17 |
Pálmi Freyr Davíðsson | GKG | 4.8 | 17 |
Kristian Óskar Sveinbjörnsson | GM | 5.1 | 19 |
Jósef Ýmir Jensson | GKG | 5.3 | 18 |
Benjamín Snær Valgarðsson | GKG | 5.8 | 14 |
Þorsteinn Brimar Þorsteinsson | GR | 6.1 | 19 |