Auglýsing

Rúnar Arnórsson, GK, og Saga Traustadóttir, GR, eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2019. Securitas-mótinu lauk í dag á Garðavelli. Rúnar lagði Ólaf Björn Loftsson, GKG, í úrslitaleik og Saga lagði Ragnhildi Kristinsdóttur, GR, á fyrstu holu í bráðabana.

Um var að ræða þriðja mótið af alls fimm á Mótaröð þeirra bestu á keppnistímabilinu 2019.

Rúnar og Ragnhildur höfðu titla að verja.

Úrslit, rástímar og riðlar eru hér:

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að keppendum er raðað upp fjögurra manna riðla. Í karlaflokki eru 32 keppendur í alls átta riðlum. Sigurvegarinn úr hverjum riðli kemst í átta manna úrslit.

Í kvennaflokki eru keppendur alls 23. Riðlarnir eru því alls 6 og í einum þeirra eru þrír keppendur. Siguvegarnir úr hverjum riðli fara í átta manna úrslit ásamt tveimur keppendum sem eru með bestan árangur í 2. sæti.

Kristján Þór Einarsson úr GM hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari í holukeppni. Fyrst árið 2009 og í annað sinn árið 2017. Hann er meðal keppenda líkt og Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR sem sigraði árið 2011.

Í kvennaflokki er Þórdís Geirsdóttir úr Keili á meðal keppenda en hún hefur tvívegis sigrað á þessu móti.

Fyrst var keppt á Íslandsmótinu í holukeppni árið 1988 og mótið í ár það 32. frá upphafi. Fyrstu Íslandsmeistararnir í holukeppni voru þau Úlfar Jónsson og Karen Sævarsdóttir.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast fagnað þessum titli í karlaflokki eða fjórum sinnum. Í kvennaflokki hefur Ragnhildur Sigurðardóttir oftast sigrað eða sjö sinnum alls.

Meðalforgjöfin í karlaflokki er -0,4 og í kvennaflokki er meðalforgjöfin 3,6.

Að venju eru systkini, bræður og systur á meðal keppenda á Mótaröð þeirra bestu.

Ragnar Már Garðarsson og Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG eru bræður. Hulda Clara Gestsdóttir og Eva María Gestsdóttir úr GKG eru systur líkt og Ásdís Valtýsdóttir og Nína Margrét Valtýsdóttir úr GR. Systkinin Dagbjartur og Perla Sól Dagbjartsbörn eru á meðal keppenda á Securitas-mótinu. Perla Sól er jafnframt yngsti keppandinn er hún er fædd árið 2006.  Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR hefur sigrað á tveimur fyrstu mótum tímabilsins á Mótaröð þeirra bestu.

Atvinnukylfingurinn Ólafur Björn Loftsson úr GKG er á meðal keppenda en hann varð Íslandsmeistari í golfi árið 2009.  Ólafur Björn og Kristján Þór Einarsson eru í sama riðli.

Flestir keppendur koma frá GR eða 16 alls, GKG er með 15 keppendur og GK er með 10.

Alls koma keppendur frá alls 9 klúbbum og eru 5 þeirra með keppendur í bæði karla – og kvennaflokki.

Úrslit, rástímar og riðlar eru hér:

Íslandsmeistarar í holukeppni frá upphafi:

Karlaflokkur:

  • 1988 Úlfar Jónsson, GK (1)
  • 1989 Sigurður Pétursson, GR (1)
  • 1990 Sigurjón Arnarsson, GR (1)
  • 1991 Jón H Karlsson, GR (1)
  • 1992 Björgvin Sigurbergsson, GK (1)
  • 1993 Úlfar Jónsson, GK (2)
  • 1994 Birgir Leifur Hafþórsson, GL (1)
  • 1995 Örn Arnarson, GA (1)
  • 1996 Birgir Leifur Hafþórsson, GL (2)
  • 1997 Þorsteinn Hallgrímsson, GV (1)
  • 1998 Björgvin Sigurbergsson, GK (2)
  • 1999 Helgi Þórisson, GS (1)
  • 2000 Björgvin Sigurbergsson, GK (3)
  • 2001 Haraldur Heimisson, GR (1)
  • 2002 Guðmundur I. Einarsson, GR (1)
  • 2003 Haraldur H. Heimisson, GR (2)
  • 2004 Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (3)
  • 2005 Ottó Sigurðsson, GKG(1)
  • 2006 Örn Ævar Hjartarson, GS (1)
  • 2007 Ottó Sigurðsson, GKG (2)
  • 2008 Hlynur Geir Hjartarson, GK (1)
  • 2009 Kristján Þór Einarsson, GM (1)
  • 2010 Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (4)
  • 2011 Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR (1)
  • 2012 Haraldur Franklín Magnús, GR (1)
  • 2013 Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (1)
  • 2014 Kristján Þór Einarsson, GM (2)
  • 2015 Axel Bóasson, GK (1)
  • 2016 Gísli Sveinbergsson, GK (1)
  • 2017 Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (1)
  • 2018 Rúnar Arnórsson, GK (1)
  • 2019: Rúnar Arnórsson, GK (2)

Kvennaflokkur:

  • 1988 Karen Sævarsdóttir, GS (1)
  • 1989 Þórdís Geirsdóttir, GK (1)
  • 1990 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (1)
  • 1991 Karen Sævarsdóttir, GS (2)
  • 1992 Karen Sævarsdóttir, GS (3)
  • 1993 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (2)
  • 1994 Karen Sævarsdóttir, GS (4)
  • 1995 Ólöf María Jónsdóttir, GK (1)
  • 1996 Ólöf María Jónsdóttir, GK (2)
  • 1997 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (3)
  • 1998 Ólöf María Jónsdóttir, GK(3)
  • 1999 Ólöf María Jónsdóttir, GK(4)
  • 2000 Ragnhildur Sigurðardóttir, GK (4)
  • 2001 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (5)
  • 2002 Herborg Arnarsdóttir, GR (1)
  • 2003 Ragnhildur Sigðurðardóttir, GR (6)
  • 2004 Ólöf María Jónsdóttir, GK (5)
  • 2005 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (7)
  • 2006 Anna Lísa Jóhannsdóttir, GR (1)
  • 2007 Þórdís Geirsdóttir, GR (2)
  • 2008 Ásta Birna Magnúsdóttir, GK (1)
  • 2009 Signý Arnórsdóttir, GK (1)
  • 2010 Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (1)
  • 2011 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (1)
  • 2012 Signý Arnórsdóttir, GK (2)
  • 2013 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (2)
  • 2014 Tinna Jóhannsdóttir, GK (1)
  • 2015 Heiða Guðnadóttir, GM (1)
  • 2016 Berglind Björnsdóttir, GR (1)
  • 2017 Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (1)
  • 2018 Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (1)
  • 2019: Saga Traustadóttir, GR (1)

Úrslit, rástímar og riðlar eru hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ