Þing Golfsambands Íslands fer fram dagana 22.-23. nóvember 2019 en golfþingið fer fram í Laugardalshöll í Reykjavík.
Fylgst verður með gangi mála á golfþinginu á Twittersíðu GSÍ og helstu fréttir verða birtar þar.
Árskýrsla GSÍ fyrir árið 2019 er að finna hér:
Sjá má þær færslur aðeins neðar í þessari frétt
Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að sjá niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup sem gerð var fyrir GSÍ.
Dagskrá golfþings
Tímasetning: Laugardagur 23. nóvember.
Kl. 10:00 Þingstörfum fram haldið samkvæmt dagskrá
- Nefndaálit og tillögur. Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar og framkomin mál.
- Önnur mál.
Kl. 12:30 Hádegisverður, Örfyrirlestur sem kynntur verður síðar
Kl. 13:30 Þingstörfum fram haldið samkvæmt dagskrá
- Álit kjörnefndar
- Kosning stjórnar sbr. 9. gr.
- Kosning tveggja endurskoðenda og tveggja til vara
- Kosning þriggja manna og þriggja til vara í áfrýjunardómstól GSÍ. Kosning þriggja manna í dómstól GSÍ. Kosning þriggja manna og þriggja til vara í áhugamennskunefnd, aganefnd, dómaranefnd og forgjafar- og vallarmatsnefnd.
- Kosning fimm manna í kjörnefnd, sbr. 6. mgr. 5. gr.
- Kosning fulltrúa og varafulltrúa GSÍ á Íþróttaþing ÍSÍ árið sem Íþróttaþing fer fram, skv. lögum ÍSÍ.
- Þingslit.