Aðalvinningurinn í Regluverðinum 2024 hefur verið dreginn út og nafnið sem kom upp úr pípuhattinum að þessu sinni er Inga Lilý Gunnarsdóttir!
Við óskum Ingu Lilý hjartanlega til hamingju með vinninginn – dásamlega sjö daga golfferð fyrir tvo til Fairplay Golf & Spa Resort á Spáni.
Síðastliðin tólf ár hefur Vörður, í farsælu samstarfi við Golfsamband Íslands, boðið upp á golfleikinn.
Leikurinn er spilaður af tugþúsundum einstaklinga á hverju ári. Í leiknum láta þátttakendur reyna á þekkingu sína á golfreglunum og þeir sem standast prófið fá hin eftirsóknarverðu Regluvarðarverðlaun.
Leiknum er enn fremur ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sem er sérstök trygging fyrir kylfinga gegn þjófnaði á golfbúnaði og öðrum óvæntum atvikum utan vallar sem innan.
Vörður óskar Ingu Lilý hjartanlega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum þeim sem tóku þátt í golfleiknum í sumar!