Golfsamband Íslands

Ísland endaði í 19. sæti á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða – Suður-Kórea sigraði

Heimsmeistaramót stúlknaliða í golfi fór fram í Kanada dagana 30. september – 5. október og var Ísland á meðal þeirra þjóða sem fengu boð um að taka þátt.

Keppnisfyrirkomulagið var höggleikur þar sem leiknar voru alls 72 holur, 18 holur á dag. Tvö bestu skorin í hverri umferð töldu í liðakeppninni – en einnig var keppt í einstaklingskeppni. Þetta er í annað sinn sem Íslands fær boð um að taka þátt á þessu móti.

Lið Íslands var þannig skipað: Auður Bergrún Snorradóttir, Eva Kristinsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, er með liðinu sem þjálfari og Baldur Gunnarsson er sjúkraþjálfari liðsins.

Ísland endaði í 19. sæti af alls 24 þjóðum sem tóku þátt. Suður-Kórea og Kanada börðust um HM titilinn þar sem að Suður-Kórea hafði betur.

Perla Sól endaði í 26. sæti á 297 höggum (+9) (73-76-74-74)
Eva endaði í 53. sæti á 306 höggum (+18) (72-73-82-79)
Auður Bergrún endaði í 66. sæti á 317 högg (+29) (81-77-78-81)

Þetta er í níunda sinn sem þetta mót fer fram en fyrst var keppt árið 2014 en ekki var keppt 2020 og 2021 vegna heimsfaraldurs.

Sigurvegarinn í einstaklingskeppninni var Soomin Oh frá Suður-Kóreu og fær hún boð um að taka þátt á LPGA atvinnumóti sem fram fer í Kanada.

Smelltu hér fyrir stöðuna í liðakeppninni:

Smelltu hér fyrir stöðuna í einstaklingskeppninni:

Eins og áður segir er þetta er í annað sinn sem Ísland fær boð um að taka þátt á þessu móti.

Í fyrra endaði Ísland í 20. sæti. Helga Signý Pálsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir skipuðu lið Íslands á því móti.

Exit mobile version