/

Deildu:

Auglýsing

Heimsmeistaramóti áhugakylfinga í kvennaflokki lauk í dag á Írlandi. Bandaríkin fögnuðu HM -titlinum með miklum yfirburðum. Ísland endaði í 39. sæti af alls 57 þjóðum sem tóku þátt. Leikmenn Íslands bættu leik sinn jafnt og þétt út allt mótið.

Skor keppenda er uppfært hér:

Keppt er í liðakeppni og einnig gildir árangur keppenda í einstaklingskeppni. Þrír keppendur eru í hverju liði og telja tvö bestu skorin í hverri umferð.

Helga Kristín Einarsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir léku fyrir Íslands hönd. Þetta var frumraun þeirra allra á HM. Helga Kristín endaði í 92. sæti í einstaklingskeppninni á +13 samtals (79-73-76-75) 303 högg.
Saga endaði í 131. sæti á +23 samtals (76-75-83-79) 313 högg.
Ragnhildur Kristinsdóttir endaði í 144. sæti á +29 samtals (85-85-75-74) 319 högg.

Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, var með í för sem liðsstjóri. Keppt var um Espirito Santo Trophy á þessu móti sem fram fór nú fram í 28. sinn. Bandaríkin eru með 50% vinningshlutfall á þessu móti því Bandaríkin hafa unnið HM 14 sinnum alls.

HM fór fram á Carton House þar sem allar aðstæður eru í hæsta gæðaflokki. Keppt var á tveimur keppnisvöllum, sem bera nöfnin Montgomerie og O’Meara.

4. keppnisdagur:

Ragnhildur Kristinsdóttir, 74 högg +2
Helga Kristín Einarsdóttir, 75 högg +3
Skor Sögu Traustadóttur taldi ekki 79 högg +7

Lokastaðan:

1. Bandaríkin -29 samtals
2. Japan -19 samtals
3. Suður-Kórea -18 samtals
4. Kína -14 samtals
5. Þýskaland -11 samtals
6. Ítalía -10 samtals
7. Kanada -7
8.-9. Danmörk -6 samtals
8.-9. Mexíkó -6 samtals
10. Noregur -5 samtals
11.-13. Svíþjóð -4 samtals
11.-13. Sviss -4 samtals
11.-13. Írland -4 samtals
14. Ástralía -3 samtals
15.-16. Suður-Afríka -2 samtals
15.-16. Austurríki -2 samtals
17. Spánn -1 samtals
18. England par samtals
19. Nýja Sjáland +2 samtals
20.-21. Paragvæ +3 samtals
20.-21. Frakkland +3 samtals
22. Taívan +4 samtals
23. Holland +5 samtals
24. Skotland +6 samtals
25.-26. Venesúela +7 samtals
25.-26. Indland +7 samtals
27. Taíland +8 samtals
29. Kólumbía +10 samtals
30. Argentína +11 samtals
31.-33. Finnland +12 samtals
31.-33. Belgía +12 samtals
31.-33. Tékkland +12 samtals
34. Hong Kong +13 samtals
35. Dómíníska Lýðveldið +16 samtals
36. Gvatemala +17 samtals
37.-38. Marókkó +21 samtals
37.-38. Malasía +21 samtals
39. Ísland +23 samtals
40.-41. Perú +26 samtals
40.-41. Portúgal +26 samtals
42. Chile +27 samtals
43. Slóvenía +28 samtals
44. Úrúgvæ +31 samtals
45. Wales +32 samtals
46. Slóvakía +34 samtals
47. Tyrkland +36 samtals
48. Pólland +40 samtals
49. Singapúr +42 samtals
50. Brasilía +49 samtals
51. Litháen +53 samtals
52. Lettland +70 samtals
53. Guam +76 samtals
54. Búlgaría +81 samtals
55. Túnis +91 samtals
56. Úkraína +101 samtals
57. Líbanon +104 samtals

3. keppnisdagur:

Íslenska liðið bætti sig á þriðja keppnisdeg þar sem Ísland lék á +5 samtals og er í 37. sæti fyrir lokahringinn. Þrjár efstu þjóðirnar eru í sérflokki á þessu móti, Bandaríkin á -19 samtals í efsta sæti, Suður-Kórea í öðru sæti á -14 og Japan í þriðja sæti á -13.

Ísland er í 37. sæti eftir 3. keppnisdag af alls fjórum á +18 samtals:

Ragnhildur Kristinsdóttir 75 högg +2
Helga Kristín Einarsdóttir 76 högg +3
Skor Sögu Traustadóttir taldi ekki, 83 högg +10

Ísland er í 40. sæti eftir 2. keppnisdag af alls fjórum. 

Helga Kristín Einarsdóttir 73 högg +1
Saga Traustadóttir 75 högg +3
Skor Ragnhildar Kristinsdóttur taldi ekki, 85 högg +13.

Ísland var í 37. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn.

Saga Traustadóttir lék á 76 höggum +3
Helga Kristín Einarsdóttir lék á 79 höggum +6
Skor Ragnhildar Kristinsdóttur taldi ekki í dag, 85 högg +12

 

Ísland endaði í 43.-44. sæti fyrir tveimur árum þegar HM fór fram í Mexíkó. Þetta er í 10. sinn sem Ísland tekur þátt á HM í kvennaflokki.

Árangur Íslands á HM kvenna frá upphafi:

2018: 39. sæti af alls 57 þjóðum.
2016: 43.- 44. sæti af alls 55 þjóðum.
2014: 29. sæti af alls 50 þjóðum.
2012: 36. sæti af alls 53 þjóðum.
2010: 42. sæti af alls 52 þjóðum.
2008: 41. sæti af alls 48 þjóðum.
2006: 33. sæti af alls 42 þjóðum.
2004: Tóku ekki þátt.
2002: Tóku ekki þátt.
2000: 32. sæti af alls 32 þjóðum.
1998: Tóku ekki þátt.
1996: Tóku ekki þátt.
1994: 24. sæti af alls 29 þjóðum.
1992: Tóku ekki þátt.
1990: Tóku ekki þátt.
1988: Tóku ekki þátt.
1986: Tóku ekki þátt.
1984: Tóku ekki þátt.
1982: 25. sæti af alls 26 þjóðum.
1980: Tóku ekki þátt.
1978: Tóku ekki þátt.
1976: Tóku ekki þátt.
1974: Tóku ekki þátt.
1972: Tóku ekki þátt.
1970: Tóku ekki þátt.
1968: Tóku ekki þátt.
1966: Tóku ekki þátt.
1964: Tóku ekki þátt.

Metþátttaka er á HM að þessu sinni en alls eru 57 þjóðir. Á HM í Mexíkó fyrir tveimur árum tóku 55 þjóðir þátt.

Suður-Kórea hefur titil að verja en Suður-Kórea hefur fagnað HM titlinum í þrjú af síðustu fjórum skiptum sem HM hefur farið fram. Bandaríkin hefur oftast sigrað á HM eða alls 13 sinnum.

Bestu áhugakylfingar heims eru á meðal keppenda en 12 af 25 efstu á heimslista áhugakylfinga eru á meðal keppenda.

1 – Jennifer Kupcho (Bandaríkin)
2 – Lilia Vu (Bandaríkin)
3 – Kristen Gillman (Bandaríkin)
6 – Albane Valenzuela (Sviss)

7 – Krida Kinhult (Svíþjóðð)
15 – Leonie Harm (Þýskaland)
16 – Maddie Szeryk (Kanada)
18 – Alessia Nobilio (Ítalía)
20 – Ayean Cho (Suður-Kórea)
21 – Jaclyn Lee (Kanada)
22 – Yuka Yasuda (Japan)
23 – Olivia Mehaffey (Írland)

Aðeins sjö þjóðir hafa fagnað HM titlinum frá upphafi.

Bandaríkin er með flesta HM titla eða 13 alls, Suður-Kórea er með 4 titla, Ástralía 3, Frakkland 2, Svíþjóð 2, Spánn 2 og Suður-Afríka 1.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ